
Strengjasveitin Spiccato og Flygladúóið Sóley leiða saman hesta sína í fyrsta sinn á sunnudagstónleikum þar sem tveir tvöfaldir konsertar eru í öndvegi. Spiccato var stofnuð árið 2012 og leikur án stjórnanda, og félagarnir skiptast á um einleikshlutverkin. Í Sóleyju leika Laufey Sigrún Haraldsdóttir og Sólborg Valdimarsdóttir saman á tvo flygla og hafa gert frá 2019. Konsert Bachs í c-moll fyrir tvö hljómborð, BWV 1060, er talinn eiga rætur í konsert fyrir fiðlu og óbó. Ekki er vitað til þess að hann hafi áður verið leikinn hér á landi á tvö hljómborð. Konsert Vivaldis fyrir tvær fiðlur í a-moll, RV 522, er úr safni tólf konserta sem kom út árið 1711 og barst tónskáldum víða um Evrópu, Bach þar á meðal. Hvor hópurinn leikur líka einn og sér, og á efnisskránni eru jafnframt Koma drottningarinnar af Saba eftir Händel, tvö verk eftir Gluck, Jesus bleibet meine Freude og Air úr þriðju hljómsveitarsvítu Bachs.
Efnisskrá
- Georg Friedrich HändelKoma drottningarinnar af Saba, úr Salómon
- Antonio VivaldiKonsert fyrir tvær fiðlur í a-moll, RV 522
- Christoph Willibald GluckDanse des spectres et des furies
- Christoph Willibald GluckMelódía úr Orfeo ed Euridice
- Johann Sebastian BachJesus bleibet meine Freude
- Johann Sebastian BachAir úr hljómsveitarsvítu nr. 3
- Johann Sebastian BachKonsert fyrir tvö píanó í c-moll, BWV 1060
Flytjendur
- Spiccato Stringsstrengjasveit
- Flygladúóið Sóleyflygladúó
- Laufey Sigrún Haraldsdóttirpíanó
- Sólborg Valdimarsdóttirpíanó