Spiccato Strings
Strengjasveit sem fiðluleikararnir Martin Frewer og Hlíf Sigurjónsdóttir stofnuðu árið 2012. Martin kom til landsins árið 1983 til að leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sveitin hélt fyrstu tónleika sína í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í desember 2012 og hefur síðan leikið mest í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu, en einnig í Skálholti, á Selfossi og í Reykjanesbæ. Á æfingum ræða hljóðfæraleikararnir túlkunina saman og skipta með sér einleikshlutverkum. Barokktónlist hefur verið kjarninn í efnisskránni frá upphafi. Vorið 2014 lék sveitin fyrstu sex concerti grossi Corellis, op. 6, í Neskirkju, og sumarið 2015 lék hún í Dómkirkjunni konsert Bachs fyrir þrjár fiðlur. Upprunaleg gerð konsertsins fyrir fiðlur er glötuð og aðeins gerðin fyrir þrjá sembala varðveitt. Martin umritaði hana fyrir upprunalegu hljóðfærin. Síðustu ár hefur sveitin einnig leikið strengjaserenöður Tsjajkovskíjs, Dvořáks og Elgars og Simple Symphony eftir Britten.
Framundan
Tvöföld barokkveisla
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
4.900 kr.≈ 36 EUR≈ 39 $≈ 56 CAD≈ 30 GBP≈ 267 DKK



