
Strengjasveitin Spiccato, sem hefur leikið án stjórnanda frá stofnun árið 2012 og þar sem félagarnir skiptast á um einleikshlutverkin, heldur jólatónleika í Vídalínskirkju. Efnisskráin hefst á Danse des spectres et des furies eftir Gluck. Síðan hljóma Concerto grosso Francescos Manfredinis í G-dúr, op. 3 nr. 12, sem er jólakonsert hans, strengjakonsert Vivaldis í d-moll og sinfónía í F-dúr eftir Giuseppe Antonio Brescianello, og tónleikunum lýkur á konsert Bachs fyrir tvær fiðlur í d-moll.
Efnisskrá
- Christoph Willibald GluckDanse des spectres et des furies
- Francesco ManfrediniConcerto grosso í G-dúr, op. 3 nr. 12
- Antonio VivaldiKonsert fyrir strengi í d-moll, RV 128
- Giuseppe Antonio BrescianelloSinfónía nr. 5 í F-dúr
- Johann Sebastian BachKonsert fyrir tvær fiðlur í d-moll, BWV 1043
Flytjendur
- Spiccato Stringsstrengjasveit