← Allir listamenn

Píanóleikari

Sólborg Valdimarsdóttir

Píanóleikari, fædd árið 1987. Hún nam hjá Peter Máté, lauk B.Mus-prófi frá Listaháskóla Íslands vorið 2009 og meistaraprófi í píanóleik frá Det Jyske Musikkonservatorium í Árósum árið 2011, þar sem Anne Øland og Thomas Trondhjem kenndu henni. Árið 2014 lauk hún diplómanámi í listkennslu frá Listaháskólanum. Hún hefur einkum lagt stund á kammertónlist, ekki síst meðleik með söngvurum, og hefur leikið í tónleikaröðinni Perlur íslenskra sönglaga í Hörpu, á Óperudögum og með Caput-hópnum. Með Laufeyju Sigrúnu Haraldsdóttur skipar hún Flygladúóið Sóleyju, sem leikur tónlist fyrir tvo flygla. Hún kennir á píanó og kammertónlist við Tónlistarskóla Kópavogs.

Framundan

Aðrir flytjendur