Píanóleikari
Laufey Sigrún Haraldsdóttir
Píanóleikari, fædd árið 1982. Hún nam við Tónlistarskólann á Akureyri og síðan hjá Halldóri Haraldssyni og Peter Máté við Listaháskóla Íslands, þaðan sem hún lauk B.Mus-prófi, og lauk M.Mus-prófi í klassískum píanóleik frá Tónlistarháskólanum í Árósum. Frá 2015 til 2017 lék hún reglulega í tónleikaröðinni Perlur íslenskra sönglaga í Hörpu, meðal annars með sópransöngkonunni Heiðdísi Hönnu Sigurðardóttur. Hún leikur jafnt klassíska tónlist sem spuna og hljóðverk, hefur leikið tónlist fyrir jóga og hugleiðslu og útsetur og flytur eigin tónlist. Árið 2019 stofnaði hún Flygladúóið Sóleyju með Sólborgu Valdimarsdóttur. Hún kennir við Tónskóla Sigursveins.
Framundan
Tvöföld barokkveisla
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
4.900 kr.≈ 36 EUR≈ 39 $≈ 56 CAD≈ 30 GBP≈ 267 DKK

