← Allir viðburðir

Djass

Kvartett Hróðmars Sigurðssonar

Umsjón: Múlinn Jazzklúbbur

Teikning af sneriltrommu með tveimur kjuðum í kross á skinninu, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Gítarleikarinn og tónskáldið Hróðmar Sigurðsson leikur eigin tónlist með kvartett sínum, að miklu leyti nýtt efni af plötu sem hann vinnur nú að. Fyrri plötur hans eru Hróðmar Sigurðsson frá 2021 og +1 frá 2025. Tónlistin er djass með áhrifum úr rokki, ambient og sálartónlist, og frjáls spuni er stór hluti hennar. Hróðmar var valinn bjartasta vonin í djass- og blústónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum 2021. Eiríkur Orri Ólafsson leikur á trompet, Birgir Steinn Theodorsson á kontrabassa og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur.

Flytjendur