Trompetleikari
Eiríkur Orri Ólafsson
Trompetleikari, fæddur árið 1980. Hann hóf nám á djass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH haustið 1996 hjá Eiríki Erni Pálssyni og naut einnig leiðsagnar Ásgeirs Steingrímssonar, Sigurðar Flosasonar og Hilmars Jenssonar. Hann var skiptinemi við Tónlistarháskólann í Gautaborg og nam síðar djasstrompetleik við Conservatorium van Amsterdam. Frá því upp úr aldamótum hefur hann leikið í íslensku jaðartónlistarlífi, hljóðritað og ferðast um heiminn með hljómsveitum á borð við múm, Sigur Rós, Seabear, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Stórsveit Nix Noltes. Í djassi og spunatónlist hefur hann leikið með Hilmari Jenssyni og Skúla Sverrissyni, og hann er í hljómsveitinni Mógil. Í lok árs 2017 stofnaði hann tríóið hist og með Róbertu Andersen og Magnúsi Trygvasyni Eliassen. Þar leikur hann á trompet og rafhljóðfæri, og tríóið blandar saman djassi, raftónlist og spuna. Hljómsveitin hefur gefið út plöturnar Days of Tundra, hits of, holy ghost of og Hist Highness, og þrjár þær fyrstu voru tilnefndar til Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Framundan
Ekkert framundan.