← Allir listamenn

Trommuleikari

Sólrún Mjöll Kjartansdóttir

Trommuleikari, fædd árið 1995. Hún lék lengi með lúðrasveit og hóf síðan nám við Tónlistarskóla FÍH, þar sem hún lærði á djassbraut. Á Músíktilraunum vorið 2012 var hún valin besti trommuleikarinn, þá í unglingahljómsveitinni White Signal. Síðar lék hún á trommur með Ceasetone. Árið 2015 lék hún inn á plötu Bubba Morthens, 18 konur, ásamt Ingibjörgu Elsu Turchi, Brynhildi Oddsdóttur og Margréti Arnardóttur. Lögin á plötunni fjalla mörg um konur. Allir hljóðfæraleikarar hennar eru konur. Hún hefur einnig leikið í hljómsveit Unu Torfa á tónleikaferðum hennar.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur