← Allir listamenn

Gítarleikari og tónskáld

Hróðmar Sigurðsson

Gítarleikari og tónskáld, fæddur árið 1991. Hann hóf nám við Tónlistarskóla FÍH árið 2011 og lauk þaðan burtfararprófi og kennaraprófi árið 2017, og síðan hefur hann starfað sem tónlistarmaður og tónlistarkennari. Hann hefur leikið með tónlistarfólki úr ýmsum áttum, meðal annars Ife Tolentino, Elísabetu Ormslev og Teiti Magnússyni, og í hljómsveitum leiksýninga í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Frá 2020 hefur hann haldið úti stórri hljómsveit með blásurum og slagverki, og með henni gerði hann fyrstu plötu sína, Hróðmar Sigurðsson, sem kom út árið 2021. Á henni er djass með áhrifum frá sálartónlist og suðuramerískri tónlist, og hann samdi og útsetti allt efnið sjálfur. Fyrir það ár var hann valinn bjartasta vonin í djass- og blústónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum. Með bassaleikaranum Ingibjörgu Elsu Turchi, sem hann hefur leikið með um árabil, gerði hann plötuna +1. Hún kom út hjá Reykjavík Record Shop í júlí 2025 og blandar saman djassi, rokki, spuna og ambient-tónlist fyrir rafgítar og rafbassa. Vorið 2025 frumflutti Stórsveit Reykjavíkur verk hans Vík í Hörpu.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur