← Allir viðburðir

Djass

Tríó Björns Thoroddsen

Umsjón: Múlinn Jazzklúbbur

Teikning af sneriltrommu með tveimur kjuðum í kross á skinninu, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Gítarleikarinn Björn Thoroddsen, Bjössi Thor, fer yfir sögu gítarsins með tríói sínu og leikur nokkur af eftirlætislögum sínum og syngur jafnvel sum þeirra. Sögur fylgja með. Björn hefur farið í tónleikaferðir víða um heim, bæði einn og með hljómsveit sinni, og leikur djass, blús, rokk, popp og kántrí eftir því sem honum hentar hverju sinni. Jón Rafnsson leikur á bassa og Sigfús Örn Óttarsson á trommur.

Flytjendur