← Allir listamenn

Píanóleikari

Domenico Codispoti

Ítalskur píanóleikari, fæddur í Catanzaro á Suður-Ítalíu árið 1975. Hann nam hjá Bruno Mezzena á Ítalíu og hjá Joaquín Achúcarro við Southern Methodist University í Dallas, þar sem hann lauk Artist Diploma. Árið 2001 veitti György Sándor honum fyrstu verðlaun í Pilar Bayona-píanókeppninni í Zaragoza. Hann hefur leikið einleik með English Chamber Orchestra, Luzerner Sinfonieorchester, Sinfóníuhljómsveit útvarpsins í Varsjá, Fílharmóníusveitinni í Brno og Sinfóníuhljómsveit Íslands, leikið kammertónlist með Alban Gerhardt, Sergej Krylov og David Grimal og hljóðritað fyrir Naxos, Brilliant Classics, Piano Classics og Odradek meðal annarra. Frá árinu 2000 hefur hann reglulega komið til Íslands til að halda einleikstónleika, leika með Sinfóníuhljómsveitinni og kenna á meistaranámskeiðum. Hann kennir við Conservatorio Guido Cantelli í Novara og býr í Valencia á Spáni.

Framundan

Aðrir flytjendur