← Allir viðburðir

Kammertónlist

Kammermúsíkklúbburinn: Myndir og straumar

Umsjón: Kammermúsíkklúbburinn

Teikning af háum standlampa með plíseruðum skermi, dregin með gullnu striki á ljósan pappír.

Kammermúsíkklúbburinn heldur áfram sjötugasta starfsári sínu með þremur verkum sem samin voru á árunum 1885 til 1919, eftir tónskáld sem fæddust á 19. öld og lifðu öll fram yfir síðari heimsstyrjöld. Fyrst hljómar Serenaða í C-dúr fyrir strengjatríó, op. 10, eftir Ernő Dohnányi, verk í fimm þáttum þar sem heyra má áhrif frá Brahms og ungverskri alþýðutónlist. Þá leika Guðbjartur Hákonarson og Elena Postumi fyrstu sónötu Pauls Hindemith fyrir víólu og píanó, op. 11 nr. 4. Hindemith var fiðluleikari og sneri sér að víólunni um það leyti sem hann samdi hana, og Guðbjartur, sem lærði á fiðlu en var ráðinn í víóludeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2026, leikur nú víólusónötu opinberlega í fyrsta sinn. Eftir hlé hljómar Píanókvartett Richards Strauss í c-moll, op. 13, sem hann samdi tvítugur og lék sjálfur á píanó þegar verkið var frumflutt árið 1885. Kvartettinn hefur aldrei áður verið leikinn á tónleikum klúbbsins. Pétur Björnsson leikur á fiðlu og Urh Mrak á selló.

Efnisskrá

  1. Ernő DohnányiSerenaða í C-dúr fyrir strengjatríó, op. 10 (1902)
  2. Paul HindemithSónata fyrir víólu og píanó nr. 1 í F-dúr, op. 11 nr. 4 (1919)
  3. Richard StraussPíanókvartett í c-moll, op. 13 (1885)

Flytjendur