← Allir listamenn

Sellóleikari

Urh Mrak

Sellóleikari sem vann stöðu í sellódeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands í júní 2022. Hann hóf tónlistarnám sex ára og fór fjórtán ára í Tónlistar- og ballettskólann í Ljubljana, þar sem hann lærði á selló hjá Milan Hudnik í fjögur ár. Hann nam síðan við Royal Academy of Music í Lundúnum og í Vínarborg, þar sem hann lauk bakkalár- og meistaraprófi með láði hjá Bernhard Naoki Hedenborg. Kammertónlist lærði hann með Rubik-kvartettinum við tónlistarháskólann í München undir leiðsögn Quatuor Ébène. Frá árinu 2014 var hann aukamaður í Sinfóníuhljómsveitinni í Kärnten og lék með henni sellókonsert Dvořáks árið 2016, og frá desember 2021 til maí 2022 var hann í Tonkünstler-hljómsveitinni í Vínarborg.

Framundan

Aðrir flytjendur