← Allir listamenn

Píanóleikari

Elena Postumi

Ítalskt tónskáld, hljómsveitarstjóri og píanóleikari. Hún ólst upp í Róm og nam þar píanóleik, tónsmíðar og ljóðasöngsmeðleik við Santa Cecilia-tónlistarháskólann og bókmenntir við La Sapienza-háskóla. Síðan nam hún ljóðasöngsmeðleik hjá Alexander Schmalcz við tónlistarháskólann í Leipzig og lauk þaðan Meisterklasse-prófi árið 2021 með hljómsveitarstjórn sem aukagrein. Hún var meðleikari og aðstoðarhljómsveitarstjóri við Staatstheater Darmstadt frá 2020 til 2023 og hefur unnið með Íslensku óperunni og Den Nasjonale Opera í Bergen. Fiðlukonsert hennar, saminn fyrir Pétur Björnsson, var frumfluttur í Langholtskirkju árið 2019, flautukonsertinn Corifeo delle correnti var einnig fyrst leikinn hér á landi, og tónleikhúsverk hennar, Becoming Luise Büchner, var frumsýnt í Staatstheater Darmstadt árið 2022. Hún hefur stjórnað Brúðkaupi Fígarós í Borgarleikhúsinu, leikur reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands og kennir við Akademie für Tonkunst í Darmstadt og Listaháskólann í Zürich.

Framundan

Aðrir flytjendur