Fiðluleikari
Pétur Björnsson
Fiðluleikari, fæddur á Akranesi árið 1994. Hann lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2015 hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og Ara Þór Vilhjálmssyni og hélt sama haust til náms við tónlistarháskólann í Leipzig, fyrst hjá Elfu Rún Kristinsdóttur og síðan hjá Carolin Widmann. Hann hefur verið varamaður í Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2012, leikur með strengjasveitinni Skark og er einn stofnenda kammersveitarinnar Elju. Í mars 2019 frumflutti hann með hljómsveitinni Ungfóníu í Langholtskirkju fiðlukonsert sem Elena Postumi samdi fyrir hann, og í desember sama ár lék hann Kammerkonsert Albans Berg með Elju í Iðnó. Utan sígildrar tónlistar lék hann frá árinu 2018 í strengjakvartett Ólafs Arnalds á tónleikaferðum hans um heiminn. Hann hefur einnig samið og komið fram með gjörningasveitinni Hatara.
Framundan

Kammermúsíkklúbburinn: Myndir og straumar
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.500 kr.≈ 40 EUR≈ 44 $≈ 63 CAD≈ 34 GBP≈ 300 DKK
Aðrir flytjendur


Saman á sviði: Kammermúsíkklúbburinn: Myndir og straumar
Guðbjartur Hákonarson
Víóluleikari
Næst: 29. nóv.
