
Gigtarfélag Íslands var stofnað 9. október 1976 og vinnur að hagsmunamálum fólks með gigtarsjúkdóma með fræðslu, endurhæfingu, ráðgjöf og hópastarfi um land allt. Daginn eftir fimmtugsafmæli félagsins er efnt til tónleika því til heiðurs í Grafarvogskirkju. Fram koma Sigríður Thorlacius, Jónas Sig, Ágústa Eva og Stebbi Jak ásamt Kór Menntaskólans að Laugarvatni. Aðgangur er ókeypis.
