Leikhús · Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Þjóðleikhúsið
Þjóðleikhúsið við Hverfisgötu teiknaði Guðjón Samúelsson, sem var húsameistari ríkisins frá 1920 til 1950. Fyrsta skóflustungan var tekin árið 1929 og húsið steypt upp á næstu tveimur árum, en það var ekki fullbúið fyrr en 1950 og var opnað á sumardaginn fyrsta, 20. apríl, með Nýársnóttinni eftir Indriða Einarsson. Steiningin utan á húsinu, mulin hrafntinna, kvars og silfurberg, var uppfinning Guðjóns og var síðar notuð víða á íslensk hús. Stóri salurinn tekur 500 gesti. Snúningssviðið er enn í notkun og hvílir á hring úr járni gömlu Ölfusárbrúarinnar, sem var endurgerð árið 1944, og árin 1989 og 1990 var tvennum svölum salarins breytt í einar. Ytra borð hússins, forsalir og aðalsalur hafa verið friðuð frá árinu 2004. Frá 2025 hefur Óperan verið hluti af Þjóðleikhúsinu.

Staðsetning
- Heimilisfang
- Hverfisgata 19101 Reykjavík
- Vefur
- leikhusid.is ↗
Heimsóknir
- Aðgengi
- Merkt bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru hægra megin við aðalinngang við Hverfisgötu. Þaðan liggur rampur niður að lyftuhúsi á austurhlið hússins, sem er opnað hálftíma fyrir hverja sýningu. Lyftan nær á allar hæðir áhorfendarýmisins. Hjólastólastæði í stóra salnum eru hvort sínu megin við 6. bekk á 1. hæð og eru ókeypis; þau eru bókuð í miðasölu í síma 551 1200. Salerni eru á 2. hæð austanmegin.
Framundan
