
Sigurdís Tryggvadóttir er tónskáld, píanóleikari og söngkona frá Ártúnum í Blöndudal og snýr heim með fyrstu plötu sína, Bergmál fjallanna. Tónlistin á rætur í djassi og sækir innblástur í fjöllin sem hún ólst upp við. Á plötunni eru lög hennar við ljóð afabróður hennar, Jónasar Tryggvasonar (1916–1983), en lög hans lifa í söng Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps. Þar eru einnig lög Jónasar sjálfs við ljóð Davíðs Stefánssonar og Þorsteins Valdimarssonar. Með henni leika pólski kontrabassaleikarinn Mariusz Praśniewski og ungverski trommuleikarinn Péter Horváth, og þau búa öll í Kaupmannahöfn. Að tónleikunum loknum er boðið upp á vöfflukaffi í kirkjunni. Platan verður til sölu á vínyl. Aðgangur er ókeypis.
Flytjendur
- Sigurdís Tryggvadóttirpíanó og söngur
- Mariusz Praśniewskikontrabassi
- Péter Horváthtrommur
