← Allir listamenn

Tónskáld, píanóleikari og söngkona

Sigurdís Tryggvadóttir

Hún er tónskáld, píanóleikari og söngkona, alin upp í sveit á Norðurlandi. Frá 2018 hefur hún búið í Danmörku og hlaut árið 2023 meistaragráðu í tónsmíðum og djasspíanóleik frá Konunglega danska tónlistarháskólanum með hæstu einkunn. Frá 2018 hefur hún einnig notið leiðsagnar kanadíska tónskáldsins og píanóleikarans David Braid. Hún semur fyrir djasshljómsveitir, stórar og smáar, og komst árið 2023 í úrslit tónsmíðakeppni Odense Jazz Orchestra, Nordic Composer Contest. Hún syngur einnig og hefur meðal annars gefið út eigin útsetningar á djassstöðlum. Fyrsta smáskífa hennar, I Get Along Without You Very Well, hefur náð yfir hundrað þúsund hlustunum á Spotify. Textar laga hennar eru bæði á ensku og íslensku.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur