← Allir tónleikastaðir

Kirkja · Norðurland vestra, Hvammstangi

Hvammstangakirkja

Hvammstangakirkja var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni, húsameistara ríkisins, og vígð 21. júlí 1957; yfirsmiður var Snorri Jóhannesson á Hvammstanga. Hún er steinsteypt, með bárujárnsþaki og turni, og í smárúðóttum gluggunum er litað gler. Norðurhliðin hefur verið opnuð inn í safnaðarheimili. Á altarinu stendur stytta af Kristi innan í útskorinni eikarbrík. Kaleikinn og patínuna smíðaði Helgi Þórðarson silfursmiður á Brandsstöðum í Blöndudal: kaleikurinn ber ártalið 1821 og á patínuna er ritað nafn Eggerts Jónssonar, bónda og kirkjuhaldara í Kirkjuhvammi, og ártalið 1822. Skírnarskálin er úr gleri og stendur í tréskál sem Ríkarður Jónsson skar. Pípuorgelið smíðuðu Bruno Christensen & Sønner árið 1985.

Hvammstangakirkja, hvítur turn með krossi á oddhvössu þaki, kirkjuskipið til hægri og íslenski fáninn við hún.
Ljósmynd: Eysteinn Guðni Guðnason · CC BY-SA 3.0

Staðsetning

Heimilisfang
Kirkjuvegur 2530 Hvammstangi

Orgel

Smiður
Bruno Christensen & Sønner
Smíðað
1985

Framundan