
Multiverse er kvartett trommuleikarans og tónskáldsins Scotts McLemore, og efnisskráin er öll frumsamin: laglínudrifin tónlist sem gefur spunanum rúm. Tveir gítarar kallast á, Hilmars Jenssonar og Andrésar Þórs Gunnlaugssonar, sem leikur líka á pedal steel-gítar, og Nicolas Moreaux leikur á kontrabassa.
Flytjendur
- Scott McLemoretrommur
- Hilmar Jenssongítar
- Andrés Þór Gunnlaugssongítar og pedal steel
- Nicolas Moreauxkontrabassi