← Allir listamenn

Trommuleikari og tónskáld

Scott McLemore

Bandarískur trommuleikari og tónskáld, fæddur í Virginíu. Hann byrjaði sem rokktrommari þar og lauk BM-prófi í djasstrommuleik frá William Paterson College í New Jersey árið 1997. Þar kynntist hann píanóleikaranum Sunnu Gunnlaugsdóttur, sem hann er kvæntur. Hann bjó nærri áratug í New York og lék þar meðal annars með Sunnu, Ben Monder, Tony Malaby, Chris Cheek og Tim Berne, og árið 2005 fluttu þau til Íslands. Hér hefur hann leikið með fjölda djassleikara. Hann er í tríói Sunnu með bassaleikaranum Þorgrími Jónssyni, en tríóið frumflutti plötuna Long Pair Bond á London Jazz Festival árið 2011. Hann er einnig í ASA-tríóinu með Agnari Má Magnússyni og Andrési Þór Gunnlaugssyni og í ANS-tríóinu með Agnari Má og Nicolas Moreaux. Multiverse er kvartett hans með tveimur gíturum, bassa og trommum. Fyrsta plata kvartettsins var innblásin af gítarleikaranum John Abercrombie. Sú þriðja, Onward, kom út í ágúst 2025. Hann heldur einnig úti hlaðvarpinu Keep the Flow um sköpunarferlið.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur