← Allir listamenn

Kontrabassaleikari

Nicolas Moreaux

Franskur kontrabassaleikari og tónskáld, fæddur árið 1973, sem hefur búið í Reykjavík frá 2023. Hann kom seint að kontrabassanum. Það var amma hans, fiðluleikari af Berlioz-ættinni, sem hvatti hann til að skrá sig í tónlistarskóla þegar hann var 23 ára, og síðar nam hann í New York hjá Dennis Irwin, Ben Street og Johannes Weidenmueller. Hann bjó í Lyon, Barcelona og París og lék í frönsku djasslífi með Pierre Perchaud, Olivier Bogé og Tony Paeleman. Árið 2011 lék hann á plötu armenska píanóleikarans Tigrans Hamasyan, EP n°1. Hann hefur gefið út plötur í eigin nafni hjá spænsku útgáfunni Fresh Sound, meðal annars Fall Somewhere, og ásamt öðrum með hljómsveitunum Belleville Project og FOX. Hér á landi leikur hann í ANS-tríóinu með Agnari Má Magnússyni og Scott McLemore, í tríói Andrésar Þórs Gunnlaugssonar og í Multiverse Scotts. Í september 2025 kom út plata hans Poney Moon Dance með íslenskri hljómsveit hans, Poney Moon, þar sem Magnús Trygvason Eliassen leikur á trommur, Andrés Þór á gítara og banjó, Óskar Guðjónsson á saxófón og Snorri Sigurðarson á trompet.

Framundan

Aðrir flytjendur