← Allir listamenn

Gítarleikari

Hilmar Jensson

Gítarleikari, fæddur árið 1966, sem steig fyrstu skrefin í Garðabæ en ólst upp í Hafnarfirði. Þar kenndi faðir hans honum fyrstu gripin á gítar þegar hann var sex ára. Ellefu ára hóf hann gítarnám. Hann útskrifaðist frá Tónlistarskóla FÍH árið 1987 og lauk BM-prófi frá Berklee College of Music í Boston árið 1991 og sótti einkatíma hjá Mick Goodrick, Jerry Bergonzi, Hal Crook og Joe Lovano. Hann leikur djass og framsækna tónlist og hefur komið fram í meira en þrjátíu löndum, meðal annars með tríói sínu TYFT, AlasNoAxis trommuleikarans Jims Black, MadLove Trevors Dunn og Mógil. Hann hefur leikið á meira en fimmtíu plötum og með tónlistarmönnum á borð við Tim Berne, John Zorn, Wadada Leo Smith, Arve Henriksen og Skúla Sverrisson. Hann var einn stofnenda Tilraunaeldhússins, Kitchen Motors, plötuútgáfu og listasamtaka. Lag hans Serenity var valið tónverk ársins í djassi á Íslensku tónlistarverðlaununum 2001. Hann hefur kennt við Tónlistarskóla FÍH frá 1992 og verið gestakennari við háskóla í Evrópu og Norður-Ameríku. Hann kennir rafgítarleik og spuna við Menntaskóla í tónlist og er aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur