Fiðluleikari
Sólveig Steinþórsdóttir
Fiðluleikari í annarri fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún hóf fiðlunám þriggja ára hjá Lilju Hjaltadóttur í Allegro Suzuki-tónlistarskólanum og lærði síðar hjá Guðnýju Guðmundsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún lauk bakkalárprófi frá Listaháskólanum í Berlín árið 2019 hjá Eriku Geldsetzer og meistaraprófi frá Listaháskólanum í Zürich árið 2021 hjá Rudolf Koelman. Árið 2013 lék hún fiðlukonsert Tchaikovskys með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún hefur verið í kammersveitinni Elju frá stofnun hennar árið 2017 og leikur á fiðlu í Píanókvartettinum Neglu, sem hefur starfað frá 2023. Hún leikur einnig á barokkfiðlu, meðal annars með Barokkbandinu Brák, Zürcher Barockorchester og Akademie für Alte Musik Berlin, og hefur komið fram á Bachfest í Leipzig og Sumartónleikum í Skálholti. Í júní 2023 gaf hollenska útgáfan Challenge Classics út hljóðritun hennar á sex einleikssónötum Ysaÿes.
Framundan


Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.500 kr.≈ 40 EUR≈ 44 $≈ 63 CAD≈ 34 GBP≈ 300 DKK
Aðrir flytjendur
Saman á sviði: Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Hulda Jónsdóttir
Fiðluleikari
Næst: 4. apr.

Saman á sviði: Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Katie Buckley
Hörpuleikari
Næst: 21. des.

Saman á sviði: Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Steiney Sigurðardóttir
Sellóleikari
Næst: 4. apr.
