Hörpuleikari
Katie Buckley
Fyrsti hörpuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún hóf hörpunám átta ára í Atlanta hjá Susan Bennett Brady, hélt því áfram í San Francisco hjá Ann Adams, fyrrverandi hörpuleikara sinfóníuhljómsveitarinnar og óperunnar þar í borg, og lauk bakkalár- og meistaragráðu og einleikaraskírteini frá Eastman-tónlistarháskólanum hjá Kathleen Bride. Árið 2007 stofnaði hún Duo Harpverk með slagverksleikaranum Frank Aarnink til að panta og leika nýja tónlist fyrir hörpu og slagverk. Dúóið hefur gefið út plöturnar The Greenhouse Sessions og Offshoots og frumflutti Poltroons in Paradise eftir Stewart Copeland með Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 2015. Hún lék á hörpu á plötu Bjarkar, Utopia, fór með henni í Utopia-tónleikaferðina árið 2018 og Cornucopia-ferðina árið 2019 og hefur leikið í kvikmyndatónlist, meðal annars í Draumalandinu og Bjarnfreðarsyni.

Framundan

Vetrarsólstöðutónleikar í Fimmund
Fimmund, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
Ókeypis

Garður gleði og sorgar: flauta, víóla og harpa
Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.500 kr.