← Allir viðburðir

Einleikstónleikar

J.S. Bach í Dómkirkjunni

Umsjón: Dómkirkjan í Reykjavík

Ólafur Elíasson leikur nokkrar af fjörutíu og átta prelúdíum og fúgum Johanns Sebastians Bach á flygilinn í Dómkirkjunni. Hann hefur gert það á þriðjudagskvöldum frá árinu 2016, allt árið um kring, hálfa stund í senn. Ólafur lærði hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni, síðan hjá Vlado Perlemuter í París og loks við Konunglega tónlistarháskólann í Lundúnum. Aðgangur er ókeypis.

Fleira framundan

Sams konar viðburður, um svipað leyti

16:00Einleikstónleikar

Andrew J. Yang

Norðurljós, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík

4.500 kr.≈ 33 EUR≈ 36 $≈ 52 CAD≈ 27 GBP≈ 245 DKK