
Píanóleikarinn Andrew J. Yang er fæddur og uppalinn í Kaliforníu. Hann fluttist til Íslands árið 2020 og bjó fyrst á Patreksfirði, stofnaði Alþjóðlegu píanóhátíð Vestfjarða og býr nú á höfuðborgarsvæðinu. Á efnisskránni eru Fantasía Schumanns í C-dúr, op. 17, tvö næturljóð í H-dúr, eftir Alkan og Chopin, Sónata Mozarts í a-moll, KV 310, Paisatges eftir Federico Mompou og Westfjords Suite eftir Yang sjálfan. Hann nam við Northwestern-háskóla og Mannes-tónlistarskólann í New York, hefur unnið til verðlauna í píanókeppnum í París og New York og hlaut heiðursmerki Hvítu rósarinnar frá forseta Finnlands árið 2018. Tónleikarnir taka um 90 mínútur með hléi.
Efnisskrá
- Robert SchumannFantasía í C-dúr, op. 17
- Charles-Valentin AlkanNocturne í H-dúr, op. 22
- Frédéric ChopinNocturne í H-dúr, op. 62 nr. 1
- Wolfgang Amadeus MozartSónata í a-moll, KV 310
- Federico MompouPaisatges
- Andrew J. YangWestfjords Suite
Flytjendur
- Andrew J. Yangpíanó