← Allir viðburðir

Einleikstónleikar

La Nativité du Seigneur eftir Messiaen

Á annan í jólum leikur Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju, La Nativité du Seigneur eftir Olivier Messiaen, níu hugleiðingar fyrir orgel frá árinu 1934. Verkið fylgir jólasögunni, frá vögguljóði Maríu yfir barninu til hirðanna og vitringanna sem fylgja stjörnu sinni, í þeirri sérkennilegu og litríku hljóman sem einkennir alla tónlist Messiaens. Hugleiðingarnar níu taka um klukkustund.

Flytjendur

Fleira framundan