← Allir listamenn

Þorvaldur Gylfason

Hagfræðingur og lagahöfundur, fæddur í Reykjavík árið 1951, sonur Gylfa Þ. Gíslasonar. Hann lauk doktorsprófi í hagfræði frá Princeton-háskóla árið 1976, starfaði sem hagfræðingur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í Washington til 1981 og var prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands frá 1983. Hann er nú prófessor emeritus. Hann var kjörinn á Stjórnlagaþing árið 2010 og sat í Stjórnlagaráði árið 2011. Hann hefur samið um 150 sönglög. Lagaflokkur hans Söngvar um svífandi fugla var fluttur í Salnum í Kópavogi árið 2014, og Íslenska söngvabókin, 39 lög við ljóð Kristjáns Hreinssonar, kom út á bók og tveimur diskum árið 2023. Hann var formaður Styrktarfélags Íslensku óperunnar frá 1988 til 1994 og hefur setið í stjórn Söngskólans í Reykjavík frá 2010. Hann ritstýrði útgáfu Ísalaga á einsöngslögum föður síns árið 2025. Hún geymir 31 lag, þar af ellefu sem birtust þar á prenti í fyrsta sinn.

Framundan

Aðrir flytjendur