← Allir listamenn

Sópran

Dísella Lárusdóttir

Sópransöngkona og Grammy-verðlaunahafi. Hún vakti fyrst víðtæka athygli eftir söngvarakeppni Metropolitan-óperunnar árið 2007 og heimildarmyndina The Audition, og hefur síðan sungið þar í Ástardrykknum, Parsifal, Töfraflautunni, Jenůfu, Rusölku, Rínargullinu og Ragnarökum. Hún þreytti frumraun sína á meginlandi Evrópu í titilhlutverki Lulu eftir Alban Berg í Róm árið 2017 og söng titilhlutverkið í Proserpine eftir Silviu Colasanti á Spoleto-hátíðinni árið 2019. Hún kom fyrst fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á Vínartónleikum árið 2009.

Dísella Lárusdóttir í hvítri skyrtu á ljósum bakgrunni.

Framundan