Gítarleikari
Þórarinn Sigurbergsson
Gítarleikari og gítarkennari, fæddur í Hafnarfirði árið 1958. Hann lærði hjá Eyþóri Þorlákssyni við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og lauk þaðan einleikaraprófi árið 1980. Frá 1980 til 1984 nam hann hjá José Luis González í Alcoy á Spáni. Hann hefur einnig sótt tíma og námskeið hjá Manuel Barrueco og sumarið 2010 hjá Ignacio Rodes í Alicante. Fyrstu einleikstónleika sína í Reykjavík hélt hann í Langholtskirkju vorið 1985. Árið 1987 kom út hljómplata með leik hans. Hann hefur leikið með Kammersveit Reykjavíkur og einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, í fyrsta gítarkonserti Castelnuovo-Tedescos undir stjórn Olivers Kentish, og árið 2010 frumfluttu hann og Signý Sæmundsdóttir fjórar sonnettur Shakespeares í tónsetningu Kentish. Hann hefur kennt á gítar frá 1984, fyrst við Tónlistarskóla Keflavíkur, og kennir nú við Nýja tónlistarskólann.
Framundan
