Hið íslenska gítartríó
Hið íslenska gítartríó var stofnað árið 2011. Í því leika Þórarinn Sigurbergsson, Þröstur Þorbjörnsson og Svanur Vilbergsson. Tríóið leikur einkum íslensk verk sem samin hafa verið fyrir það. Meðal tónskáldanna eru Oliver Kentish, Hróðmar I. Sigurbjörnsson, Elín Gunnlaugsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Sveinn Lúðvík Björnsson og Ari Hálfdán Aðalgeirsson. Verkið Vistas, Fantasía eftir Kentish var frumflutt árið 2012. Í því syngja gítarleikararnir, klappa og slá takt á hljóðfærin. Tríóið hefur leikið á Myrkum músíkdögum, árið 2016 í Kaldalóni og árið 2019 í Hafnarborg, þar sem þrjú ný íslensk verk voru frumflutt. Haustið 2015 tók það á móti Gítartríói Kaupmannahafnar í Norræna húsinu í samstarfi hópanna tveggja. Í apríl 2021 hélt það útgáfutónleika í Norðurljósum í Hörpu og lék verk af nýjum geisladiski, öll samin fyrir tríóið á árunum 2012 til 2018. Fyrir árið 2021 var það tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem flytjandi ársins í flokki hópa í sígildri tónlist og samtímatónlist.
Framundan

