← Allir listamenn

Gítarleikari

Þröstur Þorbjörnsson

Gítarleikari og gítarkennari, fæddur árið 1962 og ættaður frá Skagaströnd. Hann lauk kennaraprófi frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1994 og hefur sótt meistaranámskeið hjá Manuel Barrueco og David Russell. Hann hefur kennt á gítar frá því að námi lauk, um árabil við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, þar sem hann kennir nú meðal annars gítarsamspil. Auk Hins íslenska gítartríós leikur hann í Tríói Amasia með fiðluleikaranum Hlín Erlendsdóttur og klarínettuleikaranum Ármanni Helgasyni. Tríóið flytur tónlist sem samin var undir áhrifum millistríðsáranna, þar sem heyra má franska kaffihúsatónlist, djass, þjóðlög og tangóa, meðal annars eftir Astor Piazzolla.

Framundan

Aðrir flytjendur