← Allir listamenn

Gítarleikari

Francesco Rista

Gítarleikari og tónskáld frá Ítalíu, fæddur árið 1997, sem býr á Íslandi. Hann lærði fyrst hjá Carmelo Lacertosa og lauk BA-prófi með hæstu einkunn frá Ghedini-tónlistarháskólanum í Cuneo árið 2018, þar sem Davide Ficco kenndi honum. Sama ár fluttist hann til Kaupmannahafnar. Þar lauk hann meistaraprófi og einleikaraprófi frá Konunglega danska tónlistarháskólanum hjá Jesper Sivebæk og Per Pålsson. Síðan lauk hann öðru meistaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Malmö hjá Göran Söllscher og David Hansson og naut þar námsstyrks frá De Sono í Tórínó. Hann sótti einnig námskeið hjá Oscar Ghiglia við Accademia Chigiana í Siena. Útsetning hans á annarri partítu Bachs fyrir einleiksfiðlu, sem hann vann með Viggo Mangor og Elisabeth Zeuthen Schneider, kom út hjá Stradivarius árið 2023. Platan Magnificat kom út hjá Con Fuoco árið 2024. Hann frumflutti gítarkonsert eftir Oliver Davis og hefur frumflutt verk sem Finnur Karlsson, Nick Martin, Kevin Swierkosz-Lenart og fleiri hafa samið handa honum. Í tríóinu ELECTRIO leikur hann með söngkonunni Söndru Lind Þorsteinsdóttur og raftónskáldinu Simone Giordano. Tríóið flutti Stabat Mater fyrst í Mengi í júlí 2022, og platan kom út haustið 2025. Árið 2024 stofnaði hann plötuútgáfuna Fresh Ribes í Reykjavík, og frá haustinu 2026 kennir hann á gítar við Tónskólann í Reykjavík.

Framundan

Aðrir flytjendur