← Allir listamenn

Gítarleikari

Svanur Vilbergsson

Gítarleikari, fæddur árið 1981 og alinn upp á Stöðvarfirði. Hann hóf gítarnám þar og á Egilsstöðum hjá Torvald Gjerde, Garðari Harðarsyni og Charles Ross. Sautján ára fór hann í menntaskóla í Totnes á Englandi og útskrifaðist þaðan árið 2001. Síðan nam hann hjá Carlo Marchione við Tónlistarháskólann í Maastricht, þaðan sem hann lauk BMus-prófi árið 2006, og hjá Enno Voorhorst við Konunglega tónlistarháskólann í Haag, þar sem hann lauk meistaraprófi árið 2008. Hann hefur haldið einleikstónleika í Bandaríkjunum, Hollandi, Spáni, Englandi, Belgíu og Írlandi og leikur reglulega í tónleikaröðinni Casa Eulalia á Mallorca. Fyrsta einleiksplata hans, Four Works, kom út árið 2011. Í febrúar 2014 frumflutti hann gítarkonsertinn Halcyon Days, sem Oliver Kentish samdi handa honum, með Kammersveit Reykjavíkur á lokatónleikum Myrkra músíkdaga, og árið 2021 lék hann Concierto de Aranjuez eftir Rodrigo með Sinfóníuhljómsveit Austurlands. Á einleikstónleikum hans í Salnum í janúar 2025 hljómuðu ný verk eftir Daniele Basini og Egil Gunnarsson og hans eigin útsetningar á verkum Jóns Leifs og Jóns Nordal. Árið 2013 stofnuðu hann og Ögmundur Þór Jóhannesson alþjóðlegu gítarhátíðina Midnight Sun Guitar Festival í Reykjavík. Hann kennir á gítar við Tónlistarskóla FÍH og Menntaskóla í tónlist.

Framundan

Aðrir flytjendur