Lútuleikari
Sergio Coto Blanco
Lútu- og teorbuleikari frá Kosta Ríka sem lauk BMus-prófi í gítarleik frá Hochschule für Musik Hanns Eisler í Berlín og síðan meistaranámi í lútuleik við Hochschule für Künste í Bremen. Hann hefur leikið víða í Evrópu, meðal annars á Händel-Festspiele í Halle, Internationales Bachfest í Schaffhausen, Heidelberger Frühling og Bachwoche Stuttgart, og hefur kennt kontrapunkt við Universidad Nacional de Costa Rica. Árið 2023 gáfu hann og hörpuleikarinn Sólveig Thoroddsen út plötuna Consort of Two hjá þýska útgefandanum Arcantus. Á henni er ensk lútutónlist frá dögum Elísabetar fyrstu og Jakobs fyrsta, og dúettar sem samdir voru fyrir tvær lútur eru leiknir á lútu og þríraðahörpu. Hann hefur kennt á gítar og tónfræði við Tónskólann Do Re Mi frá hausti 2024 og leikur með Spiccato Strings. Frá vorinu 2025 hefur hann verið í hópnum sem sér um tónleikasyrpuna 15:15.
Framundan




