← Allir listamenn

Fiðluleikari

Agnes Eyja Gunnarsdóttir

Fiðluleikari sem nam við Listaháskóla Íslands hjá Auði Hafsteinsdóttur og lauk síðan meistaranámi í klassískum fiðluleik frá Codarts í Rotterdam hjá Letizia Sciarone. Þar lærði hún einnig að leika barokktónlist á upprunahljóðfæri, meðal annars hjá fiðluleikaranum Franc Polman og sellóleikaranum Job ter Haar, og síðan hefur hún leikið barokktónlist reglulega, meðal annars með Barokkbandinu Brák. Í nóvember 2025 var hún einn fjögurra einleikara þegar Kammersveit Breiðholts lék Árstíðir Vivaldis á upprunahljóðfæri á tónleikum 15:15, þegar þrjú hundruð ár voru liðin frá því að verkið kom fyrst út. Hún leikur í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Íslenskum strengjum, kammersveitinni Elju og Spiccato Strings. Hún kennir á fiðlu við Listaskóla Mosfellsbæjar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

Framundan

Aðrir flytjendur