Sópran
María Konráðsdóttir
Sópransöngkona, fædd í Reykjavík árið 1987. Hún lauk burtfararprófi á klarínett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2007 hjá Kjartani Óskarssyni og lærði síðan söng hjá Þórunni Guðmundsdóttur við sama skóla í tvö ár. Hún lauk bakkalárprófi frá Listaháskólanum í Berlín sumarið 2015 og meistaraprófi í ljóða- og óratoríusöng frá sama skóla vorið 2018. Carola Höhn og Eric Schneider voru meðal kennara hennar þar. Árið 2015 hlaut hún þriðju verðlaun og tvenn aukaverðlaun í Giulio Perotti-söngkeppninni í Þýskalandi, og árið 2020 var hún valin á námskeið og tónleika Internationale Bachakademie í Stuttgart, þar sem hún vann með Emmu Kirkby, Peter Harvey og Hans-Christoph Rademann. Hún hefur lagt sérstaka rækt við tónlist fyrri alda og sungið með Lautten Compagney í Berlín og Barokkbandinu Brák, og á Sumartónleikum í Skálholti 2025 söng hún titilhlutverkið í Dídó og Eneasi eftir Purcell. Haustið 2024 söng hún einsöng á barokktónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og sama ár söng hún með sellóleikaranum Yo-Yo Ma á Hringborði norðurslóða þegar verk eftir Viktor Orra Árnason var frumflutt. Á Óperudögum 2025 söng hún atriði úr óperum Monteverdis með Ensemble Elegos, þar sem Sólveig Thoroddsen lék á barokkhörpu og Sergio Coto á teorbu. Hún var um skeið raddþjálfari drengjakórs Dómkirkjunnar í Berlín. Nú stjórnar hún Barnakór Seltjarnarneskirkju og kennir á klarínett við Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar.
Framundan




