Hörpuleikari
Sólveig Thoroddsen
Hörpuleikari og söngkona, fædd árið 1989, sem lauk prófi í klassískum hörpuleik frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og BMus-prófi frá Royal Welsh College of Music and Drama í Cardiff árið 2013. Síðan nam hún leik á barokk- og endurreisnarhörpur, einkum þríraðahörpu, við Hochschule für Künste í Bremen og lauk þaðan meistaraprófi árið 2016. Eftir það bjó hún og starfaði í Bremen og lék meðal annars með Capella Santa Croce og Trio Sernisol. Á plötu sinni Snotrur, sem kom út árið 2019, syngur hún þjóðlög, dægurlög og tangóa á sjö tungumálum og leikur á keltneska hörpu, ítalska barokkhörpu og kantele. Árið 2023 gáfu hún og lútuleikarinn Sergio Coto Blanco út plötuna Consort of Two með enskri endurreisnartónlist hjá Arcantus. Hún hefur komið fram á Reykjavík Early Music Festival, Sumartónleikum í Skálholti og Óperudögum og á tónlistarhátíðum í Kosta Ríka. Hún er í kammerhópnum ReykjavíkBarokk og leikur með Spiccato Strings, og frá hausti 2024 hefur hún kennt á hörpu og tónfræði við Tónskólann Do Re Mi. Frá vorinu 2025 hefur hún verið í hópnum sem sér um tónleikasyrpuna 15:15.
Framundan

Hátíðartónleikar Gjallanda
Neskirkja, Höfuðborgarsvæðið, Reykjavík
5.500 kr.≈ 40 EUR≈ 44 $≈ 63 CAD≈ 34 GBP≈ 300 DKK




