← Allir listamenn

Hljómsveitarstjóri

Richard Schwennicke

Hljómsveitarstjóri, píanóleikari og tónskáld sem hefur verið tónlistarstjóri Óperunnar frá haustinu 2026. Hann nam píanóleik, hljómsveitarstjórn og kammertónlist í Hannover. Ferill hans hófst við óperuhúsin í Kassel og Hannover, og árið 2023 varð hann yfirmaður tónlistardeildar og kapellmeistari við Staatstheater Darmstadt, þar sem hann stjórnaði meðal annars Pnima eftir Chaya Czernowin og Ævintýrum Hoffmanns eftir Offenbach. Á starfsárinu 2024–25 gekk hann til liðs við tónlistardeild Vínaróperunnar og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn. Fyrsta ópera hans, Wüstinnen, var sett á svið í Neuköllner Oper í Berlín árið 2023. Hann hefur frumflutt verk eftir Wolfgang Rihm, Lisu Streich og Báru Gísladóttur. Hann talar íslensku.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur