← Allir listamenn

Leikari

Örn Árnason

Leikari sem lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1982 og er fastráðinn við Þjóðleikhúsið, en starfaði áður um árabil sjálfstætt sem leikari, framleiðandi, leikstjóri og höfundur. Hann er einn Spaugstofumanna, sem voru á skjánum í íslensku sjónvarpi um áratugaskeið. Hann er þekktur fyrir hlutverk sitt sem Afi í barnaefni sjónvarpsins. Með Sigurði Sigurjónssyni og Karli Ágústi Úlfssyni samdi hann og lék Harrý og Heimi, sem hófst sem útvarpsefni og hefur síðan orðið að leiksýningum og kvikmynd. Í Þjóðleikhúsinu hefur hann meðal annars leikið Lilla í Dýrunum í Hálsaskógi. Hann hefur talsett fjölda teiknimynda, var einn stofnenda talsetningarfyrirtækisins Hljóðsetningar og hefur sungið inn á nokkrar hljómplötur.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur