← Allir listamenn
Leikkona
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Leikkona sem útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1987. Á sviði Þjóðleikhússins hefur hún leikið fjölda hlutverka, meðal annars titilhlutverkið í Taktu lagið, Lóa!, frú Peachum í Túskildingsóperunni og Frúmu-Söru í Fiðlaranum á þakinu, og í Leikhúskjallaranum lék hún og söng í Ástinni ásamt Tríói Tómasar R. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Heimsljósi og Pétri Gaut og Edduverðlaunin fyrir Brúðgumann. Hún hefur leikið í kvikmyndum og þáttaröðum á borð við Mýrina, Ófærð, Svörtu sanda, True Detective og Black Mirror og hefur einnig komið fram sem tónlistarmaður.
Framundan
Ekkert framundan.


