← Allir listamenn
Léttsveit Reykjavíkur
Léttsveit Reykjavíkur er kvennakór um hundrað kvenna. Hún tók til starfa haustið 1995 innan Kvennakórs Reykjavíkur, þegar aðsókn að honum var orðin svo mikil að ákveðið var að stofna aðra sveit sem legði áherslu á léttari tónlist. Fyrstu tónleikarnir voru haldnir í húsi Kvennakórsins við Ægisgötu 3. desember 1995. Jóhanna V. Þórhallsdóttir stjórnaði kórnum frá upphafi til ársins 2012, og síðan hefur Gísli Magna stjórnað honum. Lengi var hann fjölmennasti kvennakór landsins, með um og yfir hundrað og tuttugu konur. Hann æfir í safnaðarsal Háteigskirkju og heldur að jafnaði tvenna tónleika í desember og eina til tvenna á vorin.
Framundan


