Allir listamenn

Kórstjóri

Gísli Magna

Gísli Magna er kórstjóri, söngkennari og útsetjari og hefur stjórnað Léttsveit Reykjavíkur frá haustinu 2012. Hann lærði á píanó sem barn í Tónmenntaskólanum í Reykjavík, nam söng í Söngskólanum í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og síðan tónmenntakennslu í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Um tíma nam hann söng við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag, og árið 2007 hóf hann nám við Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn og lauk þaðan diplómu þremur árum síðar. Hann hefur sungið með Schola cantorum, kór Langholtskirkju og Kammerkórnum Carminu og í uppfærslum Íslensku óperunnar og Borgarleikhússins. Hann var aðalútsetjari skemmtiþáttarins AllStars á dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 og útsetjari jólatónleikanna Frostrósir Klassík, og hann hefur stjórnað íslensku kórunum Stöku og Kvennakór Kaupmannahafnar, danska kórnum Carmen Curlers og Íslendingakórnum í London.

Framundan