← Allir listamenn
Gradualekór Langholtskirkju
Unglingakór Langholtskirkju, fyrir þrettán ára og eldri, sem varð til upp úr kórskóla kirkjunnar eftir að hann var stofnaður haustið 1991. Efnisskrá hans nær frá barokktónlist til nýrra verka. Kórinn syngur reglulega við messur, heldur jóla- og vortónleika í kirkjunni og fer í tónleikaferðir innanlands og utan, meðal annars til Kanada, Portúgals, Skotlands, Finnlands og Spánar. Hann hefur oft komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, þar á meðal á hljómdiski Chandos með verkum Jóns Leifs, og gefið út fjórar eigin plötur, þá fyrstu árið 1994 og þá síðustu, Með sumar í hjörtunum ungu, árið 2009.
Framundan
