← Allir listamenn

Kór Langholtskirkju

Kór sem starfar við Langholtskirkju í Reykjavík og var stofnaður árið 1953. Stór klassísk kórverk hafa lengi verið kjarninn í starfinu og verk Bachs þar í öndvegi. Á síðari árum hefur kórinn sungið meira án undirleiks, þar á meðal kórkonsert Schnittkes og Náttsöngva Rakhmanínovs, og hann tók þátt í kórakeppninni Florilège Vocal de Tours árið 2019. Hann hefur frumflutt ný íslensk verk, meðal annars Guðbrandsmessu sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi fyrir fimmtugsafmæli kórsins og kom út á hljómdiski árið 2008. Meðal fyrri hljóðritana eru Jóhannesarpassía Bachs (1987), Barn er oss fætt (1991), An Anthology of Icelandic Choir Music (1993), Ísland er lýðveldi (1994) og Land míns föður (1997).

Kór Langholtskirkju í svörtu á grasi fyrir framan stórt tré.

Framundan