← Allir listamenn

Graduale Nobili

Kór ungs söngfólks á aldrinum átján til þrjátíu ára, sem allt hefur lokið tónlistarnámi eða stundar það. Jón Stefánsson stofnaði kórinn árið 2000 úr hópi söngvara sem voru vaxnir upp úr Gradualekór Langholtskirkju, tuttugu og fjórar stúlkur í fyrstu. Kórinn hlaut annað sætið í evrópsku æskukórakeppninni í Kalundborg árið eftir og hefur síðan unnið til verðlauna í Tampere og í Llangollen í Wales. Hann hefur frumflutt fjölda verka eftir íslensk og erlend tónskáld og gefið út hljómdiska, þar á meðal In Paradisum árið 2008 með eintómri íslenskri tónlist. Veturinn 2010 til 2011 söng hann inn á Biophilia Bjarkar Guðmundsdóttur og fylgdi henni á tónleikaferðum fram á haustið 2013. Hann hefur einnig sungið með bandarísku hljómsveitinni Fleet Foxes.

Framundan