Sópran
Hlín Pétursdóttir Behrens
Sópransöngkona sem lauk einsöngvaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Sieglinde Kahmann árið 1992 og stundaði framhaldsnám við óperudeild Tónlistarháskólans í Hamborg hjá Evu Acker. Hún var gestasöngvari í Stuttgart og Bern veturinn 1994–95, fastráðin við Pfalztheater í Kaiserslautern 1995–97 og starfaði frá 1997 til 2004 við Staatstheater am Gärtnerplatz í München, þar sem hún söng meðal annars Ólympíu í Ævintýrum Hoffmanns, Blonde í Brottnáminu úr kvennabúrinu og Papagenu í Töfraflautunni. Hún flutti heim haustið 2004 og hefur sungið hér Musettu í La bohème, Clorindu í Öskubusku Rossinis og Ännchen í Galdraskyttunni eftir Weber, og hún kemur reglulega fram á kammertónleikum og ljóðatónleikum og hefur sungið mikið af kirkjutónlist. Hún kenndi um árabil í Reykjavík, við Listaháskóla Íslands, Tónlistarskólann í Reykjavík og Söngskóla Sigurðar Demetz, og kennir nú söng við tónlistarskólana á Egilsstöðum og í Fellabæ. Hún er listrænn stjórnandi og einn stofnenda óperufélagsins Austuróps á Austurlandi.
Framundan
Ekkert framundan.



