← Allir listamenn

Barítón

Gunnlaugur Bjarnason

Barítónsöngvari, alinn upp á Selfossi, sem hóf tónlistarnám við Tónlistarskóla Árnesinga, lauk framhaldsprófi í klassískum söng frá Menntaskóla í tónlist árið 2020 og meistaraprófi frá Konunglega tónlistarháskólanum í Den Haag árið 2023. Hann þreytti frumraun sína á óperusviði í september 2022 í Mærþöll eftir Þórunni Guðmundsdóttur og hefur síðan meðal annars sungið Schaunard í La bohème hjá sviðslistahópnum Óði. Hann hefur haldið ljóðatónleika víða um land og komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Suðurlands. Hann er einnig menntaður íslenskufræðingur og heldur úti hlaðvarpi um íslenskar bókmenntir fyrri alda ásamt Ármanni Jakobssyni.

Framundan

Ekkert framundan.

Aðrir flytjendur